RökUm okkurFréttirViðburðir Samband Taktu þátt
IS EN
Þjóðaratkvæðagreiðsla · 29. ágúst 2026

ESB
Nei takk!

Ung gegn ESB aðild.

Xnei Þverpólítísk samstaða ungs fólks gegn aðild að ESB
Þangað til kosið er
--
Dagar
--
Klukkustundir
--
Mínútur
29. ágúst 2026
4
2
3
5
6
1
Af hverju Nei

Þrjár ástæður til að segja nei takk

01

Fullt forræði yfir auðlindum landsins

Aðild að Evrópusambandinu felur í sér framsal ákvörðunarvalds til Evrópusambandsins á þeim málefnasviðum sem heyra undir sambandið svo sem á sviði orku, sjávarútvegs og landbúnaðar. Þannig þyrfti íslenskur sjávarútvegur að undirgangast sameiginlega fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Yfirráð yfir íslenskum auðlindum er best borgið hjá íslenskum stjórnvöldum en ekki á skrifstofu í Brussel í 2.000 km fjarlægð.

02

Breytt stjórnskipan

Aðild að Evrópusambandinu er tímafrekt ferli sem kallar á stjórnarskrárbreytingar og myndi færa mikilvægar ákvarðanir frá íslenskum kjósendum og Alþingi til stofnana Evrópusambandsins. Áhrif Íslands yrðu takmörkuð innan Evrópusambandsins en atkvæðavægi Íslands á Evrópuþinginu væri undir 1%. Ísland myndi jafnframt þurfa að borga til Evrópusambandsins vegna aðildar sem væri ólíkt síðustu stækkunum ESB þar sem aðildarríki hafa almennt verið þiggjendur úr sjóðum sambandsins.

03

Leysir ekki vandann

Aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki sjálfvirk lausn á þeim vandamálum sem við okkur blasa, til að mynda í húsnæðismálum og vegna hás vaxtastigs. Slík vandamál verða fyrst og fremst leyst með ábyrgri hagstjórn og skýrri húsnæðisstefnu hér heima. Áður en til upptöku evru kæmi þyrfti Ísland að uppfylla ákveðin skilyrði. Yrði þeim skilyrðum fullnægt, væri verulegur hluti þess vanda þegar leystur sem aðild að ESB og upptaka evru er sögð leysa.

Viðburðir

Hittumst og ræðum málin

Viðburðir kynntir til sögu fljótlega.

Taktu afstöðu

Settu Xnei ramma á prófílmyndina

Settu inn mynd, fáðu hana með Xnei ramma fyrir samfélagsmiðlana.

Fréttir

Nýjustu greinar

Vikulokin

Vikulokin 27. júní. Rætt meðal annars um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Gestir voru Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins. https://www.ruv.is/utvarp/spila/vikulokin/23792/7hvhck
Lesa meira → Vikulokin
Taktu þátt

Vertu með og skráðu þig í félagið

Tilbúin að taka þátt?

Skrá mig →