Ályktanir

Grikkland og ESB

Stjórn Ísafoldar – félags ungs fólks gegn ESB-aðild‚ gagnrýnir harðlega harkalegar aðgerðir Evrópusambandsins gagnvart Grikklandi og aðför ESB að efnahagslegu sjálfstæði landsins, en það mun bitna harkalega á borgurum þess með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

ASÍ spurði aldrei fólkið

Ísafold félag ungs fólks gegn ESB aðild mótmælir stuðningi ASÍ við Evrópusambandsumsókn íslensku ríkisstjórnarinnar.

Stjórn Alþýðusambands Íslands hefur beitt sér afdráttarlaust í þágu aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Í inngangi ályktunar frá ársfundi ASÍ sem haldin var í apríl 2009 kemur eftirfarandi fram:

„Það er skoðun ASÍ að yfirlýsing um að sótt verði um aðild Íslands að ESB og upptöku evru sé eina færa leiðin.”

Almennir félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ hafa hins vegar aldrei verið inntir álits á því hvort þeir teldu ásættanlegt að samtökunum væri beitt með þessum hætti.

Ályktun Ísafoldar um 17. júní

Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild óskar landsmönnum til hamingju með daginn. Ísland hefur verið sjálfstætt lýðveldi í 66 ár og vonast Ísafold til þess að á því verði engin breyting í framtíðinni. Félaginu þykir af þessum sökum óheppilegt að leiðtogaráð ESB skuli á þjóðhátíðardegi Íslands taka fyrir aðildarumsókn landsins að ESB. Skoðanakannanir sýna mikla andstöðu við aðild og t.a.m.

Stuðningsyfirlýsing Ísafoldar við þingsályktunartillögu þess efnis að draga ESB-umsókn tilbaka

Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild lýsir yfir stuðningi við þingsályktunartillögu þess efnis að draga beri umsókn Íslands að Evrópusambandinu tilbaka. Alþingi sótti á sínum tíma um aðild án umboðs þjóðarinnar og skoðanakannanir sýna að andstaða við aðild er mikil. Undirbúningi við umsóknarferlið er ábótavant, auk þess sem ferlið krefst mikilla fjármuna og tíma þegar mun þarfari málefni bíða. Þingsályktunartillagan er mikið gleðiefni og vonast Ísafold til að hún verði samþykkt á Alþingi.

Stjórn Ísafoldar

Aðildarferli jafngildir aðlögun

Að tilefni af umræðu síðustu daga um að hið íslenska ríkið standi nú í aðlögunarferli að ESB, en ekki aðildarviðræðum líkt og áður hafði verið haldið fram af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar, hvetur Ísafold til áframhaldandi opninnar umræðu um aðlögunarferli Íslands inn í ESB.

Harkalega hefur verið vegið að þeim sem benda á nekt keisarans og hafa sumir ráðherrar og stjórnmálamenn haldið því fram að málflutningur sé byggður á „misskilningi“.