Aðildarferli jafngildir aðlögun
Að tilefni af umræðu síðustu daga um að hið íslenska ríkið standi nú í aðlögunarferli að ESB, en ekki aðildarviðræðum líkt og áður hafði verið haldið fram af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar, hvetur Ísafold til áframhaldandi opninnar umræðu um aðlögunarferli Íslands inn í ESB.
Harkalega hefur verið vegið að þeim sem benda á nekt keisarans og hafa sumir ráðherrar og stjórnmálamenn haldið því fram að málflutningur sé byggður á „misskilningi“.
Það er góð ástæðu fyrir þessum áhyggjum almennings enda breytti ESB aðildarferli sínu árið 1995 og fólst þessi breyting aðallega í því að samhliða aðildarviðræðum færi fram svokallað aðlögunarferli eða á frummálinu „accession process“. Þessi aðlögunarferill einkennist af því að stjórnsýsla umsóknarríkisins er straumlínulöguð svo hún sé fullkomlega undirbúin fyrir aðild að ESB.
Fyrir árið 1995 hófst aðlögunarferlið einungis eftir að aðildarviðræðum hafði lokið og umsóknarríkið undirritað aðildarsamning að ESB þannig fóru aðildarviðræður fram þegar Norðmenn sóttu um aðild að sambandinu og þannig héldu margir Íslendingar aðildarviðræður myndu fara fram þegar Ísland sótti um aðild að ESB.
En reyndin er önnur. Íslenska ríkið er í miðjum aðlögunarferli til þess að ganga inn í Evrópusambandið.
Í ljósi ofangreindra staðreynda vill Ísafold árétta til þeirra sem töldu að Ísland ætti einungis í aðildarviðræðum við ESB að í veruleikanum á sér stað aðlögunarferill sem framkvæmdarstjórn ESB staðfesti með skýrslu sinni sem kom út 24. Febrúar á þessu ári.
Ísafold lýsir yfir stuðningi við þá sem þora að upplýsa almenning um sannleika málsins og hvetur þingmenn til þess að samþykkja þingsályktunartillögu þess efnis að aðildarumsókn og þar með aðlögunarferli Íslands að ESB verði dregin til baka.
Stjórn Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild”



