Ályktun Ísafoldar um 17. júní
Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild óskar landsmönnum til hamingju með daginn. Ísland hefur verið sjálfstætt lýðveldi í 66 ár og vonast Ísafold til þess að á því verði engin breyting í framtíðinni. Félaginu þykir af þessum sökum óheppilegt að leiðtogaráð ESB skuli á þjóðhátíðardegi Íslands taka fyrir aðildarumsókn landsins að ESB. Skoðanakannanir sýna mikla andstöðu við aðild og t.a.m. sýnir nýleg könnun á vegum MMR að nær 60% þjóðarinnar vill draga umsóknina til baka og að 67% þjóðarinnar finnst að þeim 990 milljónum króna sem umsóknarferlið er áætlað kosta sé mjög eða frekar illa varið. Þrátt fyrir að fundur leiðtogaráðs ESB kasti óneitanlega nokkrum skugga á þennan afmælisdag lýðveldisins lítur Ísafold með bjartsýni fram á veginn, fullviss þess að Íslendingar muni taka rétta ákvörðun þegar þar að kemur og standi sameinaðir sem sjálfstæð, fullvalda þjóð um ókomin ár.
Stjórn Ísafoldar



