Stuðningsyfirlýsing Ísafoldar við þingsályktunartillögu þess efnis að draga ESB-umsókn tilbaka
Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild lýsir yfir stuðningi við þingsályktunartillögu þess efnis að draga beri umsókn Íslands að Evrópusambandinu tilbaka. Alþingi sótti á sínum tíma um aðild án umboðs þjóðarinnar og skoðanakannanir sýna að andstaða við aðild er mikil. Undirbúningi við umsóknarferlið er ábótavant, auk þess sem ferlið krefst mikilla fjármuna og tíma þegar mun þarfari málefni bíða. Þingsályktunartillagan er mikið gleðiefni og vonast Ísafold til að hún verði samþykkt á Alþingi.
Stjórn Ísafoldar



