12 ástæður til að hafna ESB aðild

Nokkrar góðar ástæður til að vera á móti ESB aðild:

1. ESB er eingöngu 6% af heiminum.

2. Stórfellt atvinnuleysi er helsta einkenni ESB. Með inngöngu eru auknar líkur á viðvarandi atvinnuleysi á Íslandi sem bitnar harðast á ófaglærðum.

3. Löggjöf ESB verður bindandi hér á landi og er sett af fólki sem hefur ekki komið til landsins og þekkir því ekki til hagsmuna Íslands.

4. Með inngöngu Íslands í ESB verður stoðunum kippt undan landbúnaði og sjávarútvegi á Íslandi.

5. Ísland gæti orðið kvótarlaust sjávarþorp á jaðri stórríkis enda útheimtir ESB-aðild að opnað sé fyrir fjárfestingu erlendra fyrirtækja í sjávarútvegi. Íslensk útgerð er mjög skuldum vafin og í erfiðu árferði gætu veiðiheimildir auðveldlega safnast á hendur erlendra auðfélaga og arðurinn þannig flust úr landi.

6. Miðstýring valds stuðlar að minna lýðræði á Íslandi en valdamiðstöðin Brussel er í 2000 kílómetra fjarlægð. Íslendingar fengju 3 atkvæði af 350 í ráðherraráðinu og 5 atkvæði af 750 í evrópuþinginu. Er þá ekki betra að taka ákvarðanirnar hérna heima?

7. Í Lissabonsáttmálanum, sem er ígildi stjórnarskrár ESB, eru heimildir fyrir Evrópusambandsher. ESB gerir ráð fyrir að í framtíðinni þurfi Sambandið að efla hernaðarmátt sinn og áskilnaður er í grein 42. í Sambandssáttmálanum (The Treaty on European Union, TEU) að stofnaður verði her til að gæta hagsmuna ESB, bæði í Evrópu og annars staðar.

8. Með inngöngu myndu Íslendingar missa rétt sinn til að gera viðskiptasamninga við önnur ríki. ESB gerir samninga við ríki utan þess sem einn aðili en hvert og eitt aðildarríki getur ekki gert samninga upp á eigin spýtur því slíkt brýtur gegn ESB-rétti. Íslendingar gætu þannig ekki sem ESB-þjóð gert samninga við ríki utan ESB.

9. Innan ESB eru réttindi fyrirtækja sett ofar réttindum borgaranna. Til eru reglur um mannréttindi borgaranna innan ríkja ESB en erfitt er fyrir borgarana að leita réttar síns gagnvart alþjóðlegum fyrirtækjum sem brjóta á réttindum þeirra. Margir dómar Evrópudómstólsins staðfesta þetta s.s. Laval-, Rüffert- og Vaxholm-dómarnir.

10. Fullveldisafsal er bein afleiðing af inngöngu í ESB.

11. Við ESB-aðild munu verslunarsamningar Íslands við Albaníu, Tjíle, Kólombíu, Króatíu, Egyptaland, Ísrael, Jordaníu, Palestínu, Suður-Kóreu, Líbanon, Makedóníu, Meksíkó, Marokkó, Perú, Serbíu, Túnis, Barein, Kúveit, Óman, Katar, Sádí-Arabíu, Sameinuðu furstadæmin, Síngapúr, Suður-Afríku, Namíbíu, Tyrkland, Úkraínu, Botsvana, Lesóto og Svasíland verða ógildir.

12. Innan ESB eru stofnsáttmálar sambandsins æðri stjórnarskrár hinna 27 aðildarríkja og er Evrópudómstóll æðsta dómsstig ríkjana.