1. maí ganga

Við í Ísafold, félagi ungs fólks gegn ESB-aðild, ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og taka þátt í 1. maí göngunni með stæl.

Við munum hittast kl. 12.45 við Utanríkisráðuneytið á Rauðarárstíg 25 http://www.stjornarrad.is/Stadsetning/nr/151

Við ætlum að endurnýta bolina og skiltin frá því í fyrra, þannig göngufólk getur fengið það hjá okkur við ráðuneytið. Þeir sem tóku með bolinn sinn heim í fyrra eru beðnir um að koma í honum á morgun. Heimatilbúin skilti eru líka velkomin.

Í göngunni sjálfri munum við svo dreifa bæklingum um verkalýðréttindi innan ESB sem verða athentir hverjum og einum úr okkar hópi við utanríkisráðuneytið.

Sjáumst hress á degi alþýðunnar við utanríkisráðuneytið kl. 12.45!