Ferð Ísafoldar til Noregs dagana 13.-17. maí

Í maí síðastliðnum sóttu fjórir úr stjórn Ísafoldar Noreg heim. Tilgangur ferðarinnar var að hitta systursamtök Ísafoldar í Noregi Ungdom Mot EU en þar í landi er, líkt og á íslandi eru einnig starfandi samtök sem eru ætluð öllum aldurshópum, Nei til EU og ýmsa aðra hagsmunahópa á borð við Sosialistisk Ungdom (Ungliðahreyfingu sósíalista), formann Ung Centern (ungliðahreyfing Miðjuflokksins), ATTAC, Save the Children og fleiri til að stilla saman strengi og ræða margvísleg rök þessara hópa fyrir andstöðu þeirra við ESB-aðild.

Hópurinn kom til Oslóar fimmtudaginn 13. maí þar sem fulltrúar Ungdom mot EU tók á móti honum og farið var á veitingastað í miðbæ Oslóar. Á föstudeginum var norska þingið heimsótt þar sem þingmaðurinn og ungliðinn Stine Renate Håheim sýndi og fræddi um þingið og starfshætti þess. Sama dag áttum við góðan fund með stjórn Sosialistisk ungdom sem er ungliðahreyfing Sósíalista.

Á laugardeginum var fundaröð á skrifstofu Ungdom mot EU. Hún hófst með fundi með Johannes Ringdal, formanni ungliðahreyfingar Miðjuflokksins (Centerpartiet), svo var fundað með Kirsten Kolstad Kvalo frá Press – Save the Children um Schengen, Benedicte Pryneid frá Attac um samninga ESB við þróunarlönd, Jens Kihl frá norsku tungumálahreyfingunni (Norwegan Language Youth) og að lokum fræddi Ebba Boye, formaður Sosialistisk ungdom okkur um ESB og feminisma (eða skort á feminisma).

Á sunnudeginum áttum við svo fund með Mími Kristjánssyni blaðamanni um ESB og fjármálastefnu ESB og stilltum saman strengi með stjórn Ungdom mot EU.

Á lokadegi ferðarinnar, mánudegi, tókum við þátt í hefðbundum hátíðarhöldum með gestgjöfum okkar í tilefni af þjóðhátíðardegi Noregs þ.e. 17. maí. Norðmenn halda ævinlega hátíðlega upp á daginn og flestir þeirra klæðast þjóðbúningum þennan dag. Öskufallið lék okkur grátt eins og marga aðra og úr varð að fluginu til Íslands var frestað um 12 tíma. Hvað sem því líður, var þetta bæði skemmtileg og nytsamleg ferð.

Brynja B. Halldórsdóttir

Ólafur Hannesson

Stefnir Húni Kristjánsson

Baldur Ingi Halldórsson