Pub-quiz á Kaffi Zimsen fimmtudagskvöldið 23. júní.

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, stendur fyrir pub-quizi á Kaffi Zimsen á jónsmessunótt, þ.e. fimmtudagskvöldið 23. júní.

Spyrill er enginn annar en Erpur Eyvindarson; eða Blaz Roca sem mun halda uppi stuðinu en keppnin hefst kl. 21.00.

Spurt verður meðal annars um Ísland og ESB en einnig um aðra hluti sem vert er að vita um.

Keppt verður í pörum og sigurvegarnir, sem svara flestum spurningum rétt, fá vegleg verðlaun.

Allir sem taka þátt fá glaðning ( blautan og þurran)

3ja sæti fær bókaverðlaun, gjafabréf frá Bæjarins bestu og 3 bjóra bjórkort á mann

2. sæti fær stærri bókaverðlaun, gjafabréf frá Bæjarins bestu og 4 bjóra bjórkort á mann

1. sæti fær svo hvor um sig, gjafabréf upp á 3ja rétta máltíð fyrir tvo á glæsilega veitingastaðnum Við tjörnina (sjá www.vidtjornina.is) eftir kenjum kokksins og auk þess 5 bjóra bjórkort.

Með öðrum orðum; stórglæsileg verðlaun!

Léttar veitingar verða á boðstólum og auk þess verða þessi frábæru tilboð á barnum:

Ópal/tópas skot á 500 kr
Einfaldur með gosi eða djús á 750 kr
Stór bjór á 550

Allir velkomnir; hvetjum félagsmenn sérstaklega til að koma með vini sína