Fréttir

Aðalfundur Ísafoldar 15.nóv

Nú á dögunum var haldinn aðalfundur hjá Ísafold, félagi ungs fólks gegn ESB aðild. Var þar kjörin ný stjórn og formaður.

Formaður:
Stefnir Húni Kristjánsson

Aðalmenn:
Ásgeir Geirsson
Brandur Þorgrímsson
Brynja Björg Halldórsdóttir
Brynjólfur Sveinn Ívarsson
Guðjón Ebbi Guðjónsson
Ólafur Egill Jónsson
Sigríður Sólveig Jóhönnudóttir
Skúli Hansen

Varamenn:
Halldóra Hjaltadóttir
Ólafur Hannesson
Steinunn Anna Baldvinsdóttir
Viðar Freyr Guðmundsson

Skoðunarmenn reikninga:
1.
Yngvi Laxdal
2.
Kjartan Elíasson

Pub-quiz á Kaffi Zimsen fimmtudagskvöldið 23. júní.

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, stendur fyrir pub-quizi á Kaffi Zimsen á jónsmessunótt, þ.e. fimmtudagskvöldið 23. júní.

Spyrill er enginn annar en Erpur Eyvindarson; eða Blaz Roca sem mun halda uppi stuðinu en keppnin hefst kl. 21.00.

Spurt verður meðal annars um Ísland og ESB en einnig um aðra hluti sem vert er að vita um.

Keppt verður í pörum og sigurvegarnir, sem svara flestum spurningum rétt, fá vegleg verðlaun.

Allir sem taka þátt fá glaðning ( blautan og þurran)

3ja sæti fær bókaverðlaun, gjafabréf frá Bæjarins bestu og 3 bjóra bjórkort á mann

1. maí ganga

Við í Ísafold, félagi ungs fólks gegn ESB-aðild, ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og taka þátt í 1. maí göngunni með stæl.

Við munum hittast kl. 12.45 við Utanríkisráðuneytið á Rauðarárstíg 25 http://www.stjornarrad.is/Stadsetning/nr/151

Við ætlum að endurnýta bolina og skiltin frá því í fyrra, þannig göngufólk getur fengið það hjá okkur við ráðuneytið. Þeir sem tóku með bolinn sinn heim í fyrra eru beðnir um að koma í honum á morgun. Heimatilbúin skilti eru líka velkomin.

Áskorun afhent þingmönnum 9. mars

Þingmenn sem standa gegn ESB aðild fengu sérstakan öskupoka sem hvatningu

Félagsmenn Ísafold mættu niður í þinghús miðvikudaginn 9. mars til að afhenda þingmönnum öskupoka með merkinu "Ísland já takk, ESB nei takk." Þingmönnum voru afhentir pokarnir ásamt áskorun um að standa við sannfæringu sína og segja nei við ESB. Nokkrir þingmenn létu taka mynd af sér við þetta tilefni og eru hér meðfylgjandi örfáar myndir.

Opinn fundur í Odda 201 þriðjudaginn 8. mars kl 12:00

Í tilefni skipun danakonungs 8. mars 1843 um að Alþingi skuli endurreist heldur Herjan, félag stúdenta gegn ESB-aðild, ásamt Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, málfund sem haldinn verður í Odda 201 í Háskóla Íslands kl 12:00 - 13:00.

Frummælendur fundarins verða:
Unnur Brá Konráðsdóttir - Alþingismaður
Ögmundur Jónasson - Innanríkisráðherra

Allir velkomnir!

Opinn fundur með Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB aðild heldur opinn fund nk. þriðjudagskvöld 15. febrúar kl 20:00.

Fundurinn verður haldinn í salarkynnum Háskóla Íslands, stofu 103 á Háskólatorgi.

Sérstakur gestur og frummælandi verður Jón Bjarnason sjávarútvegs - og landbúnaðarráðherra.

Fundarstjórn annast Stefnir Húni Kristjánsson formaður Ísafoldar.

með kveðju

Ísafold

Áfram Ísland

Meðlimir Ísafoldar fjölmenntu á skemmtistaðinn Hvítu Perluna til þess að horfa á leik Íslands og Brasilíu sem fram fór í Svíþjóð s.l. laugardag 15 janúar. Á fimmta tug manna mætti til að horfa á og fagnaði sigri Íslenska landsliðsins í handbolta. Þar sem mæting var með besta móti og stemmingin gríðarleg áætlar félagið að hittast aftur þegar strákarnir okkar komast upp úr riðlinum og eiga góða kvöldstund saman yfir hörku spennandi leik. Áfram Ísland -

Jóla og Nýárskveðjur

Ísafold óskar landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir árið sem nú er að líða.

með jólakveðju

Ísafold

Opið hús hjá Ísafold laugardaginn 18. des frá 16:30 til 19:00

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB aðild heldur opið hús í húsakynnum Heimssýnar að Hafnarstræti 18 (við hlið Kaffi Zimsen). Gestir og gangandi á öllum aldri boðnir velkomnir í smákökur, kakó og spjall. Húsið verður opið laugardaginn 18. desember frá kl 16:30 til 19:00

Ný stjórn kjörin á aðalfundi

Einkennismerkið

Nú á dögunum var haldinn aðalfundur hjá Ísafold, félagi ungs fólks gegn ESB aðild. Var þar kjörin ný stjórn og formaður.
Formaður var kjörinn Stefnir Húni Kristjánsson og í stjórn voru kjörin eftirfarandi:

Gunnlaugur Snær Ólafsson, Varaformaður
Sigríður Sólveig Jóhönnudóttir, Ritari
Ólafur Hannesson, Fjölmiðlafulltrúi
Brynja B. Halldórsdóttir
Karólína Einarsdóttir
Andrés Rúnar Ingason
Halldóra Hjaltadóttir
Skúli Hansen